Aðalval 
    Forsíða
 Hvað er að gerast?
 Um Fjörðunga
 Hvar erum við
 Hafið samband
 Umsýsla
 Upplýsingar 
    Hvað er í boði?
 Hvað er innifalið?
 Útbúnaður
 Fólkið 
   Fjörðungar
Fararstjórar
Leiðsögumenn
Hestastrákar
Afturgöngur
Bílstjórar
 Heimsóknir á síðuna 
  Núna: 3
  Í dag: 20
  Í allt: 107156

- Gil í Hvalvatnsfirði


Hluti málverks af Gili eftir Grím Sigurðsson frá Jökulsá á Flateyjardal

Hluti málverks af Gili
eftir Grím Sigurðsson frá Jökulsá á Flateyjardal

Gil stendur vestan ár skammt frá gangnamannakofanum á Tungusporði. Jörðin fór í eyði árið 1899, en síðustu ábúendur þar voru Friðrik Jónsson og Sesselja Elíasdóttir, foreldrar Theódórs Friðrikssonar rithöfundar. Þau bjuggu aðeins 3 ár að Gili.

Snjóþyngsli eru með eindæmum að Gili og segir Theódór Friðriksson svo frá þegar hann var á leið heim frá Látrum skömmu fyrir jól.

"Þá var hríðarmuggan orðin svo dimm, að rétt glórði í beygjurnar á skíðunum og tók ég nú að kvíða fyrir því að ég yrði að grafa mig í fönn. Mér blöskraði snjórinn og kom það í hug að bærinn mundi alveg kominn í kaf. Ég þóttist vera á réttri leið, en gat þó ekki fundið kotið. Ég byrjaði á því að rífa til með stafnum til þess að gera mér holu til að setjast að í. Þá varð fyrir mér undarleg misfella. Þetta var norður stafninn á eldhúsinu. Jæja, karlinn, hugsaði ég, þetta mátti ekki tæpara standa. Þessi stund líður mér seint úr minni.

Þegar ég gætti betur að, var baðstofuþakið að mestu upp úr fönninni, og eins bæjarþilið, er vísaði fram á hlaðið. En af eldhúsinu, sem var í miðið, var ekki annað upp úr en strompurinn, og var mikið, að ég skyldi ekki stingast á hausinn ofan í hlóðirnar"
(Theódór Friðriksson. 1977. Í Verum bls. 213.)

Prentvæn útgáfa

 Um svæðið 
    Grenivík
 Fyrirtæki og stofnanir
 Eyðibyggðin
 Leiðarlýsing
 Fjallaferðir eða golf
 Lesefni
 Afþreying og þjónusta 
    Veitingar
 Verslun
 Ýmis tengsl
 Myndir 
   Myndir 2011
Myndir 2004
Myndir 2005
Myndir 2006
Myndir 2007
Myndir 2008
Myndir 2009
Myndir 2010
apríl 2013  maí 2013  júní 2013
SMÞMFFL
   1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31