Aðalval 
    Forsíða
 Hvað er að gerast?
 Um Fjörðunga
 Hvar erum við
 Hafið samband
 Umsýsla
 Upplýsingar 
    Hvað er í boði?
 Hvað er innifalið?
 Útbúnaður
 Fólkið 
   Fjörðungar
Fararstjórar
Leiðsögumenn
Hestastrákar
Afturgöngur
Bílstjórar
 Heimsóknir á síðuna 
  Núna: 1
  Í dag: 27
  Í allt: 107442

Um Fjörðunga

    Hestunum leyft að grípa niður um stund.

    Hestunum leyft að grípa niður um stund.

    Fyrirtækið Fjörðungar ehf. var stofnað sumarið 1995 af þremur ungum mönnum á Grenivík í þeim tilgangi að efna til skipulagðra gönguferða um Fjörður og Látrastönd. Það voru Heimir Ásgeirsson, Hermann G. Jónsson og Jón Stefán Ingólfsson.
    Fyrsta sumarið var farin ein ferð til reynslu. Heimir og Hermann fóru þessa fyrstu ferð og buðu með sér fimm manns. Tveir trússahestar voru með í förinni og látnir bera matinn og eitthvað af viðlegubúnaðinum. Þessi ferð tókst svo vel að ákveðið var að láta til skarar skríða.
    Á útmánuðum 1996 var gefinn út bæklingur sem dreift var á ferðaskrifstofur og fyrirtæki. Náðist í fjórar ferðir. Síðan hafa verið farnar 2-8 ferðir á hverju ári. Haustið 2011 voru ferðirnar orðnar 63 og ferðalangar 1150 talsins.

    Hermann Gunnar dró sig út úr fyrirtækinu sumarið 2003 Þegar hann gerðist sjómaður og gat ekki lengur ráðið því hvenær hann tæki sumarfrí. Síðan hafa Heimir og Jón Stefán staðið að því einir, en ekki óstuddir. Eiginkonur Þeirra, Ólöf Hjartardóttir og Jórlaug Daðadóttir standa þétt við bakið á þeim og eiga til dæmis allan heiður af veglegum matarveislum í lok hverrar ferðar.

    Fjörðungar höfðu í upphafi fjóra leiðsögumenn á sínum snærum sem skiptust á; Valgarð Egilsson, Jakob Þórðarson, Harald Höskuldsson og Björn Ingólfsson. Þórður Jakobsson og Jenný Jóakimsdóttir hafa líka komið þar við sögu.
    Nokkrir tugir hestastráka hafa komið við sögu á þessum árum. Það starf er ólaunað en afar eftirsótt.

    Prentvæn útgáfa

     Um svæðið 
        Grenivík
     Fyrirtæki og stofnanir
     Eyðibyggðin
     Leiðarlýsing
     Fjallaferðir eða golf
     Lesefni
     Afþreying og þjónusta 
        Veitingar
     Verslun
     Ýmis tengsl
     Myndir 
       Myndir 2011
    Myndir 2004
    Myndir 2005
    Myndir 2006
    Myndir 2007
    Myndir 2008
    Myndir 2009
    Myndir 2010
    apríl 2013  maí 2013  júní 2013
    SMÞMFFL
       1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29 30 31